Hoppa yfir valmynd
13.2.2025
Áhrif framkvæmda við Fossvogsbrú á starfsemi Reykjavíkurflugvallar

Áhrif framkvæmda við Fossvogsbrú á starfsemi Reykjavíkurflugvallar

Samskipti og samráð Isavia Innanlandsflugvalla ehf. og Verkefnastofu Borgarlínu hafa staðið yfir í nokkur ár vegna nálægðar framkvæmdasvæðis við landfyllingar og smíða Fossvogsbrúar við Reykjavíkurflugvöll. Samstarfið hefur falið í sér reglulega fundi þar sem farið var yfir öryggissvæði flugvallarins, færslur lóðamarka og flugvallargirðinga sem og vinnu nærri hindrunarflötum í aðflugs- og brottflugsstefnu flugbrauta 01/19. 

Verkefnastofa Borgarlínu hefur ásamt hönnuðum unnið öryggismat fyrir landfyllingar og brúargerð og komið til Isavia Innanlandsflugvalla til frekari úrvinnslu. Framundan er vinna við sams konar öryggismat vegna byggingar brúarinnar sjálfrar. Öryggismatið er framkvæmt af  Isavia Innanlandsflugvöllum en ávallt háð samþykki Samgöngustofu.

Níu daga rask á tveggja ára tímabili

Hönnuðir Fossvogsbrúar hafa hagað útfærslu sinni þannig að sem minnst þurfi að beita háum tækjakosti þegar brúin verður reist og að með notkun hæðarstýringa á vinnuvélum verði hæðartakmörkun á verktíma tryggð. Isavia Innanlandsflugvellir lögðu einnig mikla áherslu á að forðast bæri vinnu við landfyllingu með dæluskipi en slík vinna mun að öllum líkindum hafa í för með sér mikla aukningu á fuglalífi við brautarendann. Þessi vinna hefur leitt til þess að einu framkvæmdirnar sem munu rjúfa hindrunarfleti flugvallarins eru þegar brúarstólpar og brúarbitar verða hífðir með 60m háum krana á fljótandi pramma. Samkvæmt áætlun hönnuða munu þessar hífingar standa yfir í níu daga samtals, eða 4 daga sumarið 2026 og 5 daga sumarið 2027 svo fremi sem veðuraðstæður séu hagfelldar.

Yfirlitsmynd yfir framkvæmdir við Fossvogsbrú Reykjavíkurmegin 

Til að lágmarka áhrif framkvæmda á starfsemi flugvallarins er gengið út frá því að hífingarnar verði gerðar að nóttu til.  Verið er að rýna hvort það samræmist hávaðareglugerð, lögreglusamþykktum og öðrum þáttum en ljúka þarf þeirri skoðun áður en hægt er að klára öryggismat Isavia Innanlandsflugvalla á framkvæmdum við  brúarbygginguna og senda til samþykktar Samgöngustofu. Fáist ekki til þess tilskilin leyfi, verður aðgerðin endurmetin af hálfu flugvallarins.

Í útboðsgögnum Betri samgangna til verktaka fyrir byggingu brúarinnar verður gerð krafa um að truflun flugsamgangna verði haldið í algjöru lágmarki. Ljóst er að framkvæmdir við landfyllingar Reykjavíkur megin rjúfa hindrunarfleti flugbrautarinnar aðeins lítillega en ákveðið hefur verið í samráði við Isavia Innanlandsflugvelli hvernig verktaki skal bera sig að þegar hann sækir um tímabundið leyfi til að rjúfa hindrunarfleti.

Mikilvægi verkefnisins og að það takist sem best að teknu tilliti til öryggismála í lofti, á láði og legi er báðum aðilum að framkvæmdum vel ljóst. Því hefur verið lög áhersla á gott samstarf á milli Betri samgagna og Isavia Innanlandsflugvalla þannig að svo megi verða.