REGLUR UM AKSTUR Á FLUGBRAUTUM Á SKRÁÐUM LENDINGARSTÖÐUM
- Öll óviðkomandi umferð er bönnuð innan flugvallarsvæða.
- Áður en ekið er inn á flugbraut skal skoða vel í kringum svæðið og hlusta á fjarskipti til að tryggja að ekkert loftfar sé í lendingu eða flugtaki.
- Ökumenn sem aka á flugbrautum skulu gæta ýtrasta öryggis.
- Ökutæki skulu búin gulu sveifluljósi sem skal gangsett þegar ökutæki er á ferð á flugbraut. Einnig skulu ökutæki vera búin talstöð með viðeigandi tíðni.
- Ökumenn skulu gæta þess, að akstursljós ökutækja trufli ekki loftför í lendingu, flugtaki eða akstri á flugbrautum.
- Akstri ökutækja og vinnuvéla á flugbrautum skal haldið í lágmarki eins og kostur er.
- Hámarkshraði ökutækja og vinnuvéla á flugsvæðum öðrum en flug- og akbrautum er 20 km/klst. Hámarkshraði ökutækja og vinnuvéla á flugbraut er 50 km/klst. Sé ekki annað sérstaklega tilgreint gilda almennar umferðarreglur á flugsvæðinu.
- Ökumönnum og fótgangandi á og við flugbraut er ávallt skylt að veita loftfari forgang.
- Eigi skal leggja bílum á flugbrautum eða innan öryggissvæðis flugbrautarinnar.
- Ef vart verður við flugumferð í nágrenni flugvallar skal yfirgefa flugbraut og öryggissvæði eins fljótt og kostur er.
- Gætið þess að bera ekki aðskotahluti inn á brautir.
- Lítið eftir aðskotahlutum á flugbraut.
- Látið vita ef vart verður við fugla við flugbraut.
- Ef yfirgefa þarf ökutæki nærri flugbraut skal klæðast sérstaklega sýnilegum fatnaði.
- Á lendingarstöðum þar sem flugradíóþjónusta er tiltæk skal haga akstri um flugbrautir samkvæmt leiðbeiningum frá flugradíó.