Aðgangsheimildir og bakgrunnsskoðun
Forathugun vinnuveitanda tengt umsóknarferli einstaklings, fyrir bakgrunnsathugun.
Bakgrunnsathugun sem samþykkt er á Íslandi getur einnig gilt í öðrum Evrópuríkjum og skiptir miklu að rétt sé að þeim staðið. Forathugun vinnuveitanda er mikilvægur liður í umsóknarferlinu sem þarf að vera lokið og viðeigandi gagna aflað áður en sótt er um aðgangsheimild og bakgrunnsathugun.
Með forathugun vinnuveitanda, áður en umsókn um aðgangsheimild fyrir einstakling er stofnuð, skal tryggt að:
- gilt persónuskilríki sé til staðar.
- náms- og starfsferill síðustu 5 ár liggi fyrir og gögn því til staðfestingar.
- ef a.m.k. 28 daga samfellt rof er á ferli, tryggja að fullnægjandi skýringar liggi fyrir ásamt gögnum sem staðfesta þær.
- Í þeim tilfellum þar sem gögn eru óskýr og ekki fullnægjandi getur vinnuveitandi með viðtali metið hvort framlögð gögn séu trúverðug eða ekki.
- Ef vinnuveitandi metur þau trúverðug skal hann samt taka fram ef slíkt átti við.
- Ef vinnuveitandi metur skýringar ekki fullnægjandi skal ekki sækja um aðgangsheimild /
- erlent sakavottorð fylgi með umsókn, ef einstaklingur var búsettur eða dvaldi erlendis í samfleytt 6 mánuði a.m.k. á síðastliðnum 5 árum. Stimpill og/eða rafrænn stimpill skal vera á erlenda sakavottorðinu og ekki liðið lengra en 3 mánuðir frá útgáfu þess.
- ef gögn eru ekki á íslensku eða ensku, að þau séu þýdd yfir á íslensku eða ensku af löggiltum skjalaþýðanda.
Það er á ábyrgð aðgangskortastjórnanda að yfirfara gögnin. Ef umsókn er undirrituð án þess að áðurnefnd atriði séu fullnægjandi mun lögregla endursenda/hafna umsókn um bakgrunnsathugun. Í öllum tilfellum er þá nauðsynlegt að senda inn nýja umsókn.
Umsóknir um aðgangsheimild fyrir einstaklinga að Innanlandsflugvöllum og bakgrunnsathuganir lögreglu eru að fullu rafrænt ferli (að undanskildum umsóknum fyrir einstaklinga með erlenda kennitölu og þau sem ekki hafa rafræn skilríki). Athugið að ef valið er um aðgangsheimild að flugsvæði, fer umsóknin beint til afgreiðslu hjá Passaútgáfu Isavia eftir samþykki umdæmisstjóra.
Sé sótt um fyrir ólögráða einstakling þarf forsjáraðili einnig að samþykkja umsókn með rafrænni undirritun.
Undirritunarbeiðnir eru virkar í 30 daga og þurfa allir aðilar að hafa undirritað umsókn innan þess tíma. Umsóknum sem ekki eru fullundirritaðar eftir 30 daga verður eytt.
Þegar allir aðilar hafa undirritað umsókn er hún send í bakgrunnsathugun til lögreglu, sé umsóknin að aðgangssvæði innan haftasvæðis eða um er að ræða starfsfólk Isavia Innanlands. Áður en það gerist þarf þó umdæmisstjóri viðkomandi umdæmis að samþykkja umsóknina. Sjá nánar um næstu skref við afgreiðslu umsókna í kaflanum um stöður umsókna. Aðgangskortastjórnendur geta fylgst með stöðu umsókna sem þeir hafa sent inn í rauntíma á slóðinni requests.isavia.is
Aðgangskortastjórnandi getur bætt við fleiri einstaklingum í einni og sömu umsókninni, en aðeins fyrir eina aðgangsheimild í senn.
Aðgangskortastjórnendur geta fylgst með stöðum umsókna sem þeir hafa sent inn á requests.isavia.is. Nánari skilgreiningar á hverri stöðu fyrir má sjá hér að neðan:
PENDING SIGNATURE – Beiðið eftir undirritun frá öllum aðilum áður en umsókn heldur áfram.
APPLICATION STOPPED – Umsókn hefur verið stöðvuð vegna þess að önnur virk umsókn er í gangi í ferli eða hún fallin á tíma.
APPLICATION SIGNED – Umsókn er full undirrituð.
IN BACKGROUND CHECK – Umsókn í bakgrunnsathugun hjá lögreglu.
DECLINED FROM BACKGROUND CHECK - Umsókn hefur annaðhvort verið endursend vegna ófullnægjandi upplýsinga/gagna eða henni hafnað í bakgrunnsathugun hjá lögreglu. Nánari upplýsingar um hvort endursendingu eða höfnun er að ræða og frekari útskýringu getur aðgangskortastjórnandi nálgast á request.isavia.is. Ef þarf að uppfæra upplýsingar þarf í öllum tilfellum að senda inn nýja umsókn.
APPROVED FOR PROCESSING - Umsókn samþykkt í bakgrunnsathugun hjá lögreglu og hún komin til vinnslu hjá Passaútgáfu Isavia.
WAITING FOR COURSE COMPLETION – Beðið eftir að einstaklingur klári skilyrt námskeið fyrir aðgangsheimild, áður en vinnsla heldur áfram hjá Passaútgáfu.
PENDING DELIVERY METHOD – Beðið er eftir að einstaklingur bóki sér tíma í snjallbox til að sækja/eða aðgangskort sett í póst.
ACCESS CARD READY – Aðgangskort er afhent með þeim máta sem óskað var eftir í umsókn.
Aðeins gildir aðgangskortastjórnendur fyrirtækja hafa heimild til þess að sækja um nýjar aðgangsheimildir að Innanlandsflugvöllum eða gera breytingar á þeim. Fyrir skráningu nýrra aðgangskortastjórnenda þarf að fylla inn umsókn með því að smella hér.
Bakgrunnsathuganir lögreglu vegna flugverndar eru framkvæmdar á grundvelli 158. og 159. gr. laga um loftferðir nr. 80/2022 og sbr. reglugerð um flugvernd nr. 750/2016.
Hlutverk og ábyrgðaskipting tengt bakgrunnsathugunum:
Samgöngustofa: Hefur eftirlit með uppfyllingu krafna á sviði flugverndar.
Ríkislögreglustjóri: Ber ábyrgð á bakgrunnsathugunum.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum: Annast framkvæmd bakgrunnsathugana.
Isavia: ber ábyrgð á aðgangsheimildum flugvalla og hefur milligöngu vegna beiðni um bakgrunnsathuganir.
Vinnuveitandi: Sinnir forathugun einstaklings í aðdraganda ráðningar og bakgrunnsathugunar, ásamt því að sækja um aðgangsheimild.
Einstaklingur: Leggur fram persónulegar upplýsingar, feril (nám & störf), búsetu og gögn til staðfestingar. Veitir heimild fyrir bakgrunnsathugun.
Sjá nánar um bakgrunnsathuganir lögreglu á vefsvæði lögreglunnar hér.
Aðeins aðgangskortastjórnendur geta skráð sig inn í umsóknarformið til að sækja um eða breyta aðgangsheimildum að KEF.
Ef vandamál koma upp við innskráningu mælum við með að endurræsa tölvuna og/eða prófa hreinsa skyndiminni (cahce) og vafrakökur. Hér finnur þú leiðbeiningar um hvernig það er gert.
Ef frekari eða önnur vandamál koma upp við innskráningu, vinsamlega hafið samband við Passaútgáfu með því að smella hér.